Kvennafótbolti að nýju undir merkjum Þórs

Á dögunum var Þór kynnt að 34 ára sögu kvennaknattspyrnu undir merkjum ÍBA og síðar Þór/KA væri lokið. Sagan er löng og sigursæl bæði hvað varðar árangur innan og utan vallar. Starfið hefur alið af sér góða einstaklinga, atvinnumenn, landsliðskonur og margir hafa tekið þátt i starfinu, barist fyrir og lagt sitt af mörkum til bæta kvennaknattspyrnu. Þór vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra fyrir ómetanlegt framlag, jafnt innan vallar sem utan.

Minningarnar eru margar í Þór/KA, Þór/KA/KS og Þór/KA/Dalv/Völ. Um leið og við kveðjum Þór/KA hlakkar Þór til framtíðarinnar. Þór mun halda áfram að styðja við stelpur jafnt sem stráka í knattspyrnu enda bæði kyn alltaf verið hluti af starfi okkar frá yngstu flokkunum og upp i meistaraflokk. Við erum full af metnaði og krafti og viljum áfram stuðla að tækifærum fyrir allar stelpur til að stunda knattspyrnu á Akureyri.

Þau sem vilja taka þátt í starfinu á einhvern hátt eru hvött til að hafa samband við félagið. Um leið minnum við á að hjá okkur eru allir iðkendur velkomnir.

Takk Þór/KA!

Áfram Þór!

Nokkrar af leikmönnum Þórs 
Frá vinstri - Hildur Anna Birgisdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir.

Spennandi fótboltasumar framundan í Þorpinu 2027