Kvennakvöld Þórs/KA og KA/Þórs 21. maí

Stjórnir knattspyrnuliðs Þórs/KA og handknattleiksliðs KA/Þórs hafa tekið sig saman um að halda kvennakvöld til fjáröflunar fyrir félögin laugardagskvöldið 21. maí. Veislustjóri verður Bryndís Ásmunds.

Aðgöngumiðar eru í prentun og hefst sala um leið og þeir detta í hús. Miðasala verður í Hamri og KA-heimilinu.

Helstu upplýsingar:

Staður: Vitinn, Strandgötu 53
Verð: 7.400 krónur
Tími: Laugardagur 21. maí, húsið opnað kl. 18:30 með fordrykk.
Aldurstakmark: 18 ára
Veislumatur, skemmtiatriði, glæsilegt happdrætti

Veislustjóri: Bryndís Ásmunds - brot úr Tina Turner show
Skemmtikraftar: Herbert Guðmunds, Gummi Ben, Auddi Blö, Ágúst Bryjnars og HJ ELITE dance show

Rútuferðir á ball með Færibandinu í Síðuskóla. Ballið hefst kl. 23.

Allur ágóði rennur til rekstrarins hjá Þór/KA og KA/Þór.