LEIK FRESTAÐ Körfubolti: Topplið Subway-deildarinnar mætir í Höllina

LEIK FRESTAÐ

Þar sem sumar samgönguleiðir milli suðvesturhornsins og Norðurlands hafa ekki verið opnar í dag (flugleiðin) hefur leik Þórs og Keflavíkur verið frestað. Nýr leikdagur verður tilkynntur síðar.

Það er skammt stórra högga á milli hjá stelpunum okkar í Subway-deildinni því í kvöld mæta þær toppliði deildarinnar, Keflavík, í Íþróttahöllinni á Akureyri. Leikurinn hefst kl. 20:15. Vakin er athygli á óvenjulegum leiktíma.

Þór er í 6. sæti deildarinnar þegar átta umferðum er lokið, með fjóra sigra og fjögur töp. Keflvíkingar eru á toppi deildarinnar, hafa unnið alla átta leiki sína það sem af er tímabilinu. Keflvíkingar unnu Íslandsmeistara Vals með 20 stiga mun í síðustu umferð, en Þór tapaði fyrir Grindavík eftir að hafa unnið tvo leiki í röð þar á undan.

  • Deild: Subway-deild kvenna
  • Leikur: Þór - Keflavík
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Miðvikudagur 22. nóvember
  • Tími: 20:15

Að venju verða borgarar á grillinu fyrir leik.

Leikurinn verður í beinni á Þór TV.