Leikdagur: Úrslitastund hjá handboltaliði Þórs

Skjáskot af hsi.is. Úrslit fyrstu leikjanna í umspilinu fyrir Olísdeildina.
Skjáskot af hsi.is. Úrslit fyrstu leikjanna í umspilinu fyrir Olísdeildina.

Í kvöld ræðst það hvort handknattleikslið Þórs í Grill 66 deildinni er komið í frí eða ekki. Liðið mætir Fjölni í öðrum leik liðanna í umspili deildarinnar á Akureyri kl. 18.

Fjölnir vann fyrsta leik liðanna sem fram fór í Grafarvoginum á föstudagskvöldið, 30-22. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olísdeildinni á næsta tímabili og mætir þar annaðhvort Víkingi eða Kórdrengjum. 

Leikur Þórs og Fjölnis hefst kl. 18 eins og áður sagði og ástæða til að hvetja Þórsara til að mæta í Höllina og styðja strákana til sigurs. Orkan úr stúkunni getur gert kraftaverk þegar á þarf að halda.

Fyrir þau sem ekki komast á leikinn er einnig möguleiki að horfa á hann í beinu streymi á Þór TV - ThorTV — Livey