Leikur Þórs/KA og Breiðabliks færður í Bogann

Leikur dagsins fer fram í Boganum.
Leikur dagsins fer fram í Boganum.

 

Þór/KA og Breiðablik mætast í fjórðu umferð Bestu deildarinnar í dag kl. 18. Mótastjóri hefur tekið ákvörðun um að færa leikinn í Bogann.

Leikurinn átti að fara fram á Þórsvelli, en með vallar- og veðuraðstæður í huga, og veðurhorfur, var tekin ákvörðun um það í morgun, eftir að fulltrúi KSÍ hafði skoðað aðstæður, að leikurinn færi fram í Boganum.

Nánari upphitun fyrir leikinn má finna á thorka.is.