Liverpool-skólinn á Akureyri 6.-8. júní

Knattspyrnudeild Þórs verður með hinn sívinsæla Liverpool-skóla í sumar, í samstarfi við Aftureldingu. Skráning er hafin.

Liverpool-skólinn verður á Þórssvæðinu eins og ávallt, en æfingar fara fram dagana 6.-8. júní. Átján þjálfarar frá Liverpool verða með skólann, ásamt aðstoðarfólki frá Þór. Boðið verður upp á sérstakan markmannahóp. Ásamt þjálfuninni er innifalið ávaxtahressing, hádegismatur og fótbolti að gjöf. Boðið er upp á systkinaafslátt. Skólinn stendur yfir kl. 9:30-15:00 alla þrjá dagana og eru 16 í hverjum hópi.

Nánari upplýsingar: Liverpool@afturelding.is.

Skráning í Liverpool-skólann fer fram í gegnum Sportabler - smellið hér fyrir skráningu.

Facebook-síða Liverpool-skólans.