Lykilleikmenn framlengja í körfuboltanum

Frá undirskrift samninga í Hamri í dag. Myndir: Páll Jóhannesson.
Frá undirskrift samninga í Hamri í dag. Myndir: Páll Jóhannesson.

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við tvo lykilleikmenn kvennaliðs Þórs, Heiðu Hlín Björnsdóttur fyrirliða og Evu Wium Elíasdóttur, bakvörð og leikstjórnanda, um að leika áfram með liðinu.

Undirbúningur fyrir þátttöku kvennaliðs félagsins í Subway-deildinni í körfubolta á komandi tímabili er á fullu þessa dagana, hugað að leikmannamálum og gengið frá samningum. Hópurinn tekur svo væntanlega á sig frekari mynd á næstunni. 

Heiða Hlín Björnsdóttir (1997) er bakvörður/framherji og fyrirliði Þórsliðsins. Hún var valin körfuknattleikskona Þórs í fyrra. Heiða spilaði að meðaltali tæpar 30 mínútur í leik á liðnu tímabili þegar Þórsliðið tryggði sér sæti í efstu deild. Hún skoraði að meðaltali 11 stig í leik, tók 4,3 fráköst, átti 1,8 stoðsendingar og með 8,1 framlagspunkt að meðaltali í leik.

Heiða Hlín á að baki mörg ár í meistaraflokki, kom fyrst við sögu 2011 og má því segja að hún sé að hefja sitt 14. tímabil í meistaraflokki þó leikirnir hafi ekki verið margir 2011 og 2012. Hún hefur spilað lengst af með Þór, en einnig Snæfelli og Fjölni, og er eini leikmaður Þórsliðsins með reynslu af því að spila í efstu deild. Hún á að baki 214 leiki í meistaraflokki, þar af 139 leiki með Þór.


Daníel Andri Halldórsson þjálfari og Heiða Hlín Björnsdóttir fyrirliði handsala samninginn í Hamri í dag. Mynd: Páll Jóhannesson.

Eva Wium Elíasdóttir (2004) er bakvörður og leikstjórnandi, og ein af allra efnilegustu körfuboltakonum í þeirri stöðu á landinu. Hún hefur spilað með meistaraflokki frá 2018, fyrst með Þór, síðan Tindastóli þegar Þórsliðið var lagt niður, og svo aftur með Þór frá 2021. Eva hefur spilað samtals 91 leik í meistaraflokki, þar af 74 með Þór.

Eva spilaði 31 leiki með Þórsliðinu á nýafstöðnu tímabili, að meðaltali rúmar 32 mínútur í leik. Hún skoraði að meðaltali 11,9 stig í leik, tók 5,1 frákast, átti 3,9 stoðsendingar og með 11,2 framlagspunkta að meðaltali. Eva spilar með U20 landsliði Íslands.


Daníel Andri Halldórsson þjálfari og Eva Wium Elíasdóttir handsala samninginn í Hamri í dag. Mynd: Páll Jóhannesson.