Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Tveir ungir Danir ganga í raðir Þórs og leika með liðinu í Olís-deildinni næsta vetur.
Það eru þeir Mikkel Jensen og Oliver Christensen.
Mikkel er 20 ára hægri skytta og 192cm á hæð sem kemur frá Silkeborg en hefur undanfarin ár spilað hjá SHEA eða handbolta akademíu Skanderborg og spilaði nýlega sínar fyrstu mínútur með meistaraflokk Skanderborg.
Oliver er 20 ára vinstri hornamaður, 186 cm á hæð og hefur allan sinn feril spilað hjá Skanderborg en undanfarin 4 ár hefur hann spilað með akademíu Skanderborg, einnig hefur Oliver spilað með meistaraflokk Skanderborg eða SAH en þeir sitja í öðru sæti í dönsku úrvalsdeildinni og spiluðu einnig í Evrópudeildinni í vetur.
Við bjóðum Mikkel og Oliver hjartanlega velkomna í Þorpið.