Miklar breytingar á aðalstjórn Þórs

Ný aðalstjórn Þórs: frá vinstri: Unnsteinn Jónsson, Eva Björk Halldórsdóttir, Ragnar Níels Steinsson…
Ný aðalstjórn Þórs: frá vinstri: Unnsteinn Jónsson, Eva Björk Halldórsdóttir, Ragnar Níels Steinsson, Íris Ragnarsdóttir, Nói Björnsson, Þóra Pétursdóttir, Þorgils Sævarsson, Jakobína Hjörvarsdóttir og Ingi Steinar Ellertsson. Lengst til hægri á myndinni er Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs.

Aðalfundur Þórs fór fram í gær og var ljóst fyrirfram að miklar breytingar yrðu á aðalstjórn félagsins ásamt því að áður hefur greint verið frá því að nýr formaður hefur verið kjörin. Úr aðalstjórn félagsins gengu þau Ingi Björnsson, Elma Eysteinsdóttir, Kristinn Ingólfsson, Brynja Sigurðardóttir og Helga Lyngdal ásamt því að Þóra Pétursdóttir sem áður gengdi embætti varamanns er nú orðin formaður félagsins. Vill heimasíðan koma á framfæri ævarandi þökkum til þeirra sem nú úr stjórn ganga fyrir frábær störf í þágu félagsins á undanförnum árum.

Inn í stjórn komu þau Eva Björk Halldórsdóttir, Ingi Steinar Ellertsson og Nói Björnsson.  Ragnar Níels Steinsson og Jakobína Hjörvarsdóttir eru nýkjörnir varamenn í stjórn félagsins en Jakobína, sem er fædd árið 2004 er einnig fulltrúi unga fólksins í stjórninni. Íris Ragnarsdóttir, Þorgils Sævarsson og Unnsteinn Jónsson sitja áfram í stjórn. Bjóðum við nýja stjórnarmeðlimi hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum mikið til framtíðarinnar með þeim.