Mótadagskrá Píludeildar

Mótadagskrá Píludeildar fyrir vormisseri hefur verið birt.
 
Viðburðadagskrá Píludeildarinnar fram í maí má sjá á myndunum hér að neðan. Dagsetningar gætu færst til, en það verður þá auglýst með góðum fyrirvara. Þessi dagskrá er ekki tæmandi listi yfir mót sem haldin verða hjá deildinni og til að mynda eru ekki öll skemmtimót skráð þarna inn, en þau sem bætast við verða auglýst með góðum fyrirvara. Mót sem haldin eru fyrir sunnan eru einnig með í þessari dagskrá.
 
Á næstunni eru Deildakeppni Píludeildar miðvikudaginn 18. janúar, 1. umferð NOVIS-deildarinnar sunnudaginn 22. janúar, skemmtimót í 501 tvímenningi 27. janúar og svokallað Money in/Money out mót, 501 einmenningur, 31. janúar. Auk mótahalds er píluaðstaðan í íþróttahúsinu við Laugargötu opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 19-22.