Knattspyrnustjóri Pollamóts: ,,Auðvitað eru menn þreyttir en menn gleyma því í gleðinni"

Gleðin er almennt við völd á Pollamótinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Gleðin er almennt við völd á Pollamótinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Haraldur Ingólfsson, knattspyrnustjóri Pollamótsins skellti sér í stutt viðtal við fréttavefinn visir.is í dag og er óhætt að segja að viðtalið sé vel heppnað. Við viljum þó taka fram að við leiðréttum fjölda liða hjá Vísi þar sem að í frétt þeirra var sagt að 45 lið væru mætt, en hið rétta er að þau eru 68. 

Viðtalið er hér að neðan:

Pollamót Samskipa fer fram á Akureyri um helgina en metþátttaka er á mótinu í ár. Einhverjir eru þreyttir eftir tónleika í gærkvöldi en að sögn knattspyrnustjóra mótsins eru menn fljótir að gleyma því í gleðinni.

Pollamót Samskipa er haldið ár hvert samhliða N1-mótinu á Akureyri fyrstu helgina í júlí. Keppt er í sjö deildum en 68 lið eru skráð til leiks í ár sem er nýtt met. Mótið hefur gengið frábærlega þrátt fyrir einhver meiðsli. Tjútt gærkvöldsins hefur þó sett strik í reikninginn fyrir suma.

„Það hefur bara gengið glimmrandi vel. Auðvitað alltaf eitthvað sem kemur upp á, meiðsli og svona. Hér er fólk á öllum aldri og í alls konar formi að spila fótbolta, sumir eru að spila fótbolta sem hafa aldrei spilað fótbolta eða mjög lítið. Almennt séð hefur þetta gengið mjög vel,“ segir Haraldur Ingólfsson, knattspyrnustjóri mótsins.

Mikil sprenging er í þátttöku kvenna á mótinu í ár.

Seinni hluti mótsins fer fram í dag en í gærkvöldi tróðu Einar Ágúst og hljómsveitin ClubDub upp fyrir gesti. Því voru einhverjir keppendur þreyttir þegar þeir mættu til leiks í morgun.

„Neinei, klukkan níu á laugardegi eru fyrstu lið að mæta eftir skemmtun kvöldsins áður. Þá eru sumir þreyttir en það fer fljótt af mönnum. Það er líka að batna veðrið, það er að hlýna þó það sé ekki alveg glampandi sólskin. Auðvitað eru menn þreyttir en menn gleyma því í gleðinni.“

Þeir allra þreyttustu eru þó heima í dag.

„Það er stundum sem það er þannig að aðeins færri mæti á laugardagsmorgnum en eru að spila á föstudögum.“

Það er algengt að keppendur meiðist en Haraldur segir að það fylgi mótinu.

„Ég er ekki í stöðu til að meta meiðsli en það hefur þurft að kalla til sjúkrabíl tvisvar held ég. En maður veit ekkert hversu alvarleg meiðslin eru, geta verið krossbandaslys eða tognun. Ein og ein slitin hásin. Það eiginlega fylgir þessu.“