Myndbrot úr mögnuðum sigri í Hólminum

Fréttaritari fór í Hólminn, fékk sér sæti á meðal stuðningsmanna í fyrri hálfleiknum og fór svo niður á gólf þegar stutt var eftir af leiknum, mundaði símann uppi í stúku og niðri á gólfi, tók upp lokamínúturnar í fjórða leikhluta, slatta úr framlenginunni og svo auðvitað gleðina og fagnaðarlætin að leik loknum þegar ljóst var að Þórsstelpurnar höfðu tryggt sér sæti í Subway-deildinni á næsta tímabili.

Myndbandið er 14 mínútur og ekkert mikið verið að klippa út mistök eða tapaða bolta - þetta er allt hluti af leiknum.

Njótið!