Norðurlandsúrval stúlkna með tvo sigra í Danmörku

Norðurlandsúrvalið ásamt þjálfurum.
Norðurlandsúrvalið ásamt þjálfurum.

Í liðinni viku héldu 18 fótboltastelpur af Norðurlandi á aldrinum 15-16 ára ásamt fararstjórum og þjálfurum til Danmerkur til að æfa og reyna sig gegn jafnöldrum sínum. Flogið var til Kaupmannahafnar beint frá Akureyri með Niceair á sunnudegi.

Þátttakendur komu frá Þór/KA, Tindastóli, Hvöt, Umf. Fram og Völsungi. Hópurinn var valinn í framhaldi af landshlutaæfingum vetrarins, afreksæfingum á landsbyggðinni sem eru hluti af afreksstefnu KSÍ. Stelpurnar fengu rausnarlegan stuðning frá fjölmörgum fyrirtækjum á Norðurlandi til að standa straum af kostnaði við ferðina og vilja þær koma á framfæri bestu þökkum til allra sem studdu við bakið á þeim. 

Á mánudag æfðu stelpurnar á æfingasvæði Bröndby í Kaupmannahöfn, en að auki höfðu verið skipulagðir tveir æfingaleikir við U16 lið tveggja danskra félagsliða. Leikið var gegn FC Nordsjelland á þriðjudeginum, spilaðar 2x40 mínútur og svo gegn Bröndby á miðvikudeginum þar sem spilaðar voru 3x30 mínútur.

Leikurinn gegn FC Nordsjelland var jafn, hraður og skemmtilegur og það að fá að spila á aðalvelli félagsins gerði upplifunina enn sterkari og skemmtilegri. Norðurlandsúrvalið sigraði lið FC Nordsjelland, 1-0, og var það Elísa Bríet Björnsdóttir sem skoraði markið.

Leikurinn gegn Bröndby var lengri í heildina, skipt í þrjá þrjátíu mínútna leikhluta. Sá leikur fór fram á heimavelli kvennaliðs Bröndby. Heimaliðið komst yfir í öðrum leikhlutanum, en stelpurnar í Norðurlandsúrvalinu svöruðu strax með marki og svo fljótlega öðru marki í þeim leikhluta. Í þriðja leikhluta höfðu þær mikla yfirburði, bara eitt lið á vellinum, og þá bættu þær við þremur mörkum. Mörkin skoruðu Birgitta Rún Finnbogadóttir, Rebekka Sunna Brynjarsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Katla Guðný Magnúsdóttir og Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir.

Þjálfarar í ferðinni voru Ágústa Kristinsdóttir frá Þór/KA og Þórólfur Sveinsson frá Tindastóli, auk þess sem Runólfur Trausti Þórhallsson, markvarðaþjálfari hjá akademíu FCK, var þeim innan handar, bæði á æfingunum og í leikjunum. Fararstjórar í ferðinni voru Erla Ormarsdóttir og Ragnar Már Þorgrímsson.

Þessi ferð og sams konar ferð drengja af Norðurlandi sem farin var viku áður og sagt hefur verið frá eru skemmtileg leið til að fjölga áhugaverðum og spennandi verkefnum fyrir ungt knattspyrnufólk af Norðurlandi. Að sögn fararstjóra og þjálfara var ferðin skemmtileg og bætti miklu við í reynslu- og ekki síður minningabankann hjá stelpunum – og væntanlega þjálfurum og fararstjórum einnig.

Hópurinn í stafrófsröð:
Birgitta Rún Finnbogadóttir
Elísa Bríet Björnsdóttir
Elísabet Ingvarsdóttir
Elísabet Nótt Guðmundsdóttir
Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
Halla Bríet Kristjánsdóttir
Hildur Anna Birgisdóttir
Hulda Þórey Halldórsdóttir
Ísey Ragnarsdóttir
Karlotta Björk Andradóttir
Katla Bjarnadóttir
Katla Guðný Magnúsdóttir
Klara Parraguez Solar
Kolfinna Eik Elínardóttir
Nína Rut Arnardóttir
Rebekka Sunna Brynjarsdóttir
Sigríður H. Stefánsdóttir
Tinna Sverrisdóttir

Tíu af þessum 18 stelpum koma úr 3. flokknum hjá Þór/KA, þær Emelía, Hildur Anna, Ísey, Karlotta Björk, Katla, Klara, Kolfinna Eik, Nína Rut, Rebekka Sunna og Tinna.


Norðurlandsúrvalið.



Norðurlandsúrvalið ásamt þjálfurum og liði Bröndby.


Norðurlandsúrvalið ásamt liði FC Nordsjelland.