Nýja Þórstreyjan frá Macron komin í sölu

Nýja Þórstreyjan verður tilbúin til afhendingar í byrjun mars. Hægt er að fá að máta í Msport í Kaupangi og panta síðan í gegnum Macron.is. Athugið, þetta er treyja yngri flokka Þórs.

Eins og kunnugt er gerði knattspyrnudeild Þórs fatnaðarsamning við Macron á Íslandi í haust og hefur verið hægt að kaupa æfingafatnað í vefverslun á Macron.is. Nú styttist í nýju keppnistreyjuna. Nýja Þórstreyjan verður tilbúin til afhendingar í byrjun mars. Hægt að máta stærðir í Msport Kaupangi og panta settið á tilboðsverði á macron.is.

Þegar pantað er á Macron.is er hægt að velja afhendingarstaði Dropp, heimsendingu með Póstinum eða sækja í Msport Kaupangi.

https://macron.is/vorur/lidinokkar/thor/

Bendum á það er fast númerkerfi frá 5. fl. og eldri. Ef einhvern vantar númer er hægt að hafa samband Birki Hermann Björgvinsson, starfsmann unglingaráðs, í biggi@thorsport.is.