Nýtt hnefaleikanámskeið hefst 2. janúar

Hnefaleikadeildin verður með átta vikna hnefaleikanámskeið, boxþrek, á nýju ári.

Námskeiðið hefst þann 2. janúar og lýkur 23. febrúar. Tímarnir eru á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 18:30-19:30. Verðið er 23.900 krónur.

Aðstaða Hnefaleikadeildarinnar er í íþróttahúsinu við Laugagötu. 

Skráning og innheimta fer fram í gegnum Sportabler - smellið á myndina til að skrá ykkur á námskeiðið.