Öruggur sigur hjá Þór/KA2 gegn FHL

Að loknum sigri í dag. Aftari röð frá vinstri: Amalía Árnadóttir, Emelía Ósk Kruger, Bríet Jóhannsdó…
Að loknum sigri í dag. Aftari röð frá vinstri: Amalía Árnadóttir, Emelía Ósk Kruger, Bríet Jóhannsdóttir, Ólína Helga Sigþórsdóttir, Karlotta Björk Andradóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Júlía Margrét Sveinsdóttir og Anna Guðný Sveinsdóttir. Fremri röð: Angela Mary Helgadóttir, Steingerður Snorradóttir, Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir, Ísabella Júlía Óskarsdóttir, Krista Dís Kristinsdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir og Marey Dóróthea Maronsdóttir Olsen.

Amalía Árnadóttir skoraði þrennu í 11-0 sigri þegar Þór/KA2 mætti liði FHL í fyrstu umferð Kjarnafæðismótsins í dag.

Þór/KA2 var skipað ungum leikmönnum, eins og reyndar bæði liðin í dag. Okkar stelpur allar úr árgöngunum 2004-2007. Stelpurnar okkar gáfu gestunum engin grið og spiluðu á fullu gasi allan tímann. Það var ljóst frá upphafi að okkar lið var sterkara og sótti án afláts, skoruðu strax eftir fimm mínútna leik og litu ekki um öxl eftir það. Mörkin létu heldur ekki á sér standa, komu fimm í fyrri hálfleik og sex í þeim seinni, úrslitin 11-0 sigur.

Amalía Árnadóttir skoraði þrennu, Bríet Jóhannsdóttir og Krista Dís Kristinsdóttir tvö mörk hvor og þær Karlotta Björk Andradóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir og Una Móeiður Hlynsdóttir eitt mark hver. Eitt markið er skráð sem sjálfsmark mótherja.

Leikskýrslan á vef KSÍ.
Mótið - staða, úrslit leikja, leikjadagskrá - á vef KSÍ.

Næsti leikur hjá okkar stelpum verður föstudaginn 16. desember kl. 20, en þá mætir Þór/KA (1) liði Tindastóls. Næsti leikur hjá Þór/KA2 verður svo 8. janúar, en þá mætast Þór/KA-liðin innbyrðis.

Hér má sjá hópinn hjá Þór/KA í dag: