Páskabingó í Hamri í dag

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar verður með páskabingó í Hamri í dag kl. 15.

Í boði eru fjölmargir flottir og veglegir vinningar. Bingóstjórarnir Eva Wium og Maddie úr meistaraflokki kvenna í körfunni munu halda uppi stuðinu. Vöfflur og kaffi/kakó til sölu á staðnum.

Spjaldið kostar 1.500 krónur, en tvö saman eru á 2.500 krónur.