Pétur Orri í æfingahópi U16

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 landsliðs karla í fótbolta, hefur valið hóp sem æfir dagana 30. janúar - 1. febrúar.

Alls eru 25 leikmenn í hópnum og þar af einn úr Þór, Pétur Orri Arnarson.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði.

Óskum Pétri til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.