Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Íslandsmót ungmenna var haldið síðastliðin laugardag, 25. apríl, á Bullseye í Reykjavík. Fjölmennt var á mótinu en 72 krakkar mættu til leiks og keppt var í tveimur aldursflokkum í drengja- og stúlknaflokki, 9-13 ára og 14-18 ára.
6 keppendur frá Píludeild Þórs tóku þátt í mótinu og stóðu sig öll með prýði.
Breki Þór og Hrefna Lind unnu alla sína leiki og stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í sínum flokkum á Íslandsmótinu. Óskum þeim til hamingju með sigurinn!
Þess má til gamans geta að Hrefna Lind var á dögunum valin í U18 ára landslið Íslands í pílukasti sem fer til Limerick á Írlandi í sumar að taka þátt í alþjóðlegu móti.
Baltasar Ragnar endaði í 3.-4. sæti í sínum aldursflokk.
Frábær árangur hjá keppendum píludeildar Þórs um helgina.
Drengir 14-18 ára:
-Baltasar Ragnar Birgisson
-Júlían Máni Jóhannsson
Stúlkur 14-18 ára:
-Hrefna Lind Jónasdóttir
Drengir 13 ára og yngri:
-Breki Þór Sævarsson
-Dagur Sær Jóhannsson
-Halldór Jarl Birgisson
Hér er hægt að lesa um mótið og skoða myndir sem teknar voru á laugardaginn. Mótinu var streymt á Youtube síðu LiveDartsIceland og hægt er að sjá úrslitaleiki Hrefnu og Breka hér. Tvö streymi voru í boði og er hitt streymið hér.
Æfingar hja Píludeildar Þórs fyrir krakka og unglinga eru á mánudögum og miðvikudögum:
1.-5. bekkur: kl 16:45 - 17:45
6.-10. bekkur: kl 17:45 - 18:45
Þjálfari er Óskar Jónasson.


