Pílukast: Powerade mótaröðin - sigurvegarar

Powerade mótaröðin!

Á þriðjudagskvöldið lauk Powerade mótaröðinni hjá okkur. Eftir 6 kvöld þar sem keppendur mættu og söfnuðu sér stigum var ljóst hvaða keppendur tryggðu sér þátttökurétt á úrslitakvöldinu sem var haldið síðastliðið þriðjudagskvöld. 32 karlar og 8 konur tryggðu sér þátttökurétt og keppt var í A úrslitum karla og kvenna ásamt forsetabikar karla.

Keppt var í beinum útslætti og það var allt undir.

Í A úrslitum hjá körlum voru það Baltasar Ragnar og Axel James sem mættust í úrslitaleik. Baltasar átti frábært kvöld en í undanúrslitum vann hann Pétur Örn 5-4 en meðaltal Baltasars var 79 í þeim leik. Axel James vann Sigurð Þórisson 5-1 í hinum undanúrslitaleiknum. Það fór svo að Baltasar vann 6-3 í úrslitaleiknum og tryggði sér Powerade bikarinn. Þess má til gamans geta að Baltasar er 15 ára og Axel James 13 ára, þeir eiga framtíðina fyrir sér í pílukasti.

Í A úrslitum hjá konum voru það Sunna Valda og María Marinósdóttir sem mættust í úrslitaleik. Sunna vann Sigríði Ingu í undanúrslitum, 4-1 og María vann Kolbrúnu 4-2 í hinum undanúrslitaleiknum. Það fór svo að Sunna stóð uppi sem sigurvegari eftir 4-2 sigur í úrslitaleiknum.

Í forsetabikar hjá körlum voru það Aron Birkir og Jason Wright sem mættust í úrslitum. Aron Birkir tapaði einungis tveimur leggjum á leið sinni að Powerade bikarnum og má segja að sigurinn hafi verið verðskuldaður. Aron vann Jason 4-2 í úrslitaleiknum og náði sér í sinn fyrsta titil í pílukasti.

Píludeild Þórs þakkar öllum keppendum fyrir frábæra mótaröð en í heildina tóku 67 keppendur þátt. Þökkum styrktaraðila mótsins, Powerade, fyrir stuðninginn!

Aðstaðan verður lokuð í júlí og mótahald og almenn opnun hefst aftur í byrjun ágúst. Það verður mikið um að vera í pílukasti næstkomandi haust og vetur - fylgist vel með!