Pílukast: Valþór Atli með 11 pílna leik á Iceland Open

Hjörtur Geir Heimisson og Valþór Atli Birgisson, tveir af fulltrúum Þórs á Iceland Open og Iceland M…
Hjörtur Geir Heimisson og Valþór Atli Birgisson, tveir af fulltrúum Þórs á Iceland Open og Iceland Masters um helgina. Valþór Atli náði frábærum árangri. Mynd: Píludeild Þórs.

Þórsarar sendu vaska sveit pílukastara suður um liðna helgi til þátttöku í Iceland Open og Iceland Masters sem haldið var í Reykjavík. Valþór Atli Birgisson náði lengst okkar manna, komst í 16 manna úrslit og spilaði til að mynda einn 11 pílna leik, sem er frábær árangur.

Keppendur frá píludeild Þórs sem tóku þátt í mótinu voru Edgars Kede Kedza, Hjörtur Geir Heimisson, Jason Wright, Ragnar Helgason, Roman Foltynek, Valþór Atli Birgisson og Viðar Valdimarsson. Á laugardag var bein útsláttarkeppni, Iceland Open, en á sunnudag var riðlakeppni og síðan útsláttur, Iceland Maters.