Rafíþróttir: Opinn kynningarfundur 12. janúar

Rafíþróttadeild Þórs stendur fyrir opnum kynningarfundi fyrir foreldra og önnur áhugasöm um starf deildarinnar fimmtudaginn 12. janúar kl. 17.

Fundurinn verður í Hamri, félagsheimili Þórs. Farið verður yfir nýtt æfingakerfi ECA sem deildin er að innleiða. Ólafur Hrafn, framkvæmdastjóri ECA og einn af stofnefndum Rafíþróttasambands Íslands, verður á fundinum og fer yfir helstu áherslur og tækifæri í rafíþróttaheiminum.