Rjómavöfflur og súkkulaði í Hamri á aðventunni

Þórsarar bjóða heim í Hamar í girnilegar rjómavöfflur og rjúkandi súkkulaði á aðventunni.

Eins og mörg undanfarin ár taka fyrrum formenn Íþróttafélagsins Þórs sig til og standa vaktina við vöfflujárnin í desember og nú eru það þrír föstudagar 5. 12. og 19 desember sem Þórsarar bjóða heim í Hamar.

Það verða þau Árni Óðinsson, Þóra Pétursdóttir, Sigfús Helgason og svo núverandi formaður, Nói Björnsson sem taka á móti gestum í Hamri frá kl 9:00 til kl 12:00 á föstudögum á aðventunni.

Öll hjartanlega velkomin að koma og gæða sér á rjúkandi vöfflum með sultutaui og drekka heitt súkkulaði með.

Finnum jólaandann blandast saman við ilminn úr eldhúsinu í Hamri í desember.