Samningur Hagkaups og yngriflokka Þórs í handbolta

Það var stór dagur í síðustu viku þegar fulltrúar Hagkaupa undirrituðu samstarfssamning við unglingaráð Þórs í handbolta. Hagkaup hefur til margra ára verið dyggur bakhjarl handboltans og var þessi samningurinn engin undantekning. Merki Hagkaupa mun vera á búningum iðkenda, skilti Hagkaupa í Síðuskóla verður sett upp von bráðar og síðast en ekki síst hefur Hagkaup komið að styrkjum varðandi mót sem haldin eru á vegum yngriflokka Þórs í handboltanum.
Til hamingju yngri flokkar Þórs og Hagkaup.