Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Samkomulag milli Akureyrarbæjar og Þórs um uppbyggingu á félagssvæði Þórs verður undirritað við hátíðlega athöfn í Hamri, mánudaginn 23.febrúar, klukkan 15:00. Félagsmenn eru velkomnir í félagsheimilið eins og alltaf.
Eins og komið hefur fram hefur bæjarráð Akureyrar samþykkt samkomulag um uppbyggingu nýs íþróttahúss – íþróttamiðstöðvar á félagssvæði Þórs við Hamar og er áætlað að ný og glæsileg íþróttamiðstöð verði kominn í fulla notkun árið 2031.
Með samkomulagi þessu eru aðilar sammála um að Akureyrarbær setji af stað vinnu við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs. Þegar frumhönnun íþróttamiðstöðvarinnar og staðarval er tilbúið og samþykkt af til bærum aðilum, verður gerður samningur milli aðila um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið svo sem útfærslu, stærðir, stofnkostnað, forgangsröðun, hönnunar- og framkvæmdaáætlun og annað sem málið varðar.
Um verður að ræða gjörbyltingu á starfi Íþróttafélagsins Þórs og mun félagið róa öllum árum að því að með þessari framkvæmd muni öll starfsemi Þórs sameinast á einum stað í hjarta Þorpsins.