Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
U16 landslið kvenna í fótbolta kom saman til æfinga á Laugardalsvelli 21.-22. júlí. Þar áttum við sex fulltrúa, en þar af eru tvær úr okkar röðum sem eru skráðar í Dalvík og hafa spilað bæði með 3. flokki hjá okkur og meistaraflokki Dalvíkur í 2. deildinni.
Aldís Ylfa Heimisdóttir, sem tók við þjálfun U16 landsliðsins í upphafi árs, valdi alls 32 leikmenn til æfinga með U16 landsliðinu í þetta skiptið. Þar af eru þessar sex úr okkar hópi:
Þær Bríet Fjóla og Hafdís Nína eiga nú þegar að baki leiki með U15 og U16 landsliðum Íslands.