Sigur á Grindvíkingum og sætið tryggt

Aron Ingi Magnússon fagnar öðru marki sínu og þriðja marki Þórs í lok leiksins gegn Grindavík. Mynd:…
Aron Ingi Magnússon fagnar öðru marki sínu og þriðja marki Þórs í lok leiksins gegn Grindavík. Mynd: Páll Jóhannesson.

Þórsarar unnu Grindvíkinga í lokaumferð Lengjudeildarinnar á laugardag og luku keppni í 7. sæti deildarinnar.

  • 1-0 - Aron Ingi Magnússon (45’)
  • 2-0 - Bjarni Guðjón Brynjólfsson (58’)
  • 3-0 - Aron Ingi Magnússon (86’)

Með sigrinum fór Þór í 27 stig í 22 leikjum. Þrír voru jafnir í markaskorun fyrir liðið í deildinni, Alexander Már Þorláksson, Aron Ingi Magnússon og Bjarni Guðjón Brynjólfsson, allir með fimm mörk.

Aðeins tveir leikmenn tóku þátt í öllum leikjum liðsins í deildinni í sumar, Aron Birkir Stefánsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson. Aron spilaði allar mínútur í öllum leikjum. Leikurinn á laugardaginn var síðasti leikur Bjarna Guðjóns fyrir Þór í bili því hann gengur nú til liðs við Val.

1-0 - Aron Ingi Magnússon (45’)

2-0 - Bjarni Guðjón Brynjólfsson (58’)

3-0 - Aron Ingi Magnússon (86’)