Skilti í Síðuskóla

Í dag voru sett upp skilti í Síðuskóla. Unglingaráðið mætti með hallamál og borvél. Fengum vinnupalla hjá SKG verktökum ehf sem auðveldaði verkið talsvert. Bæði liðin okkar eru því komin með sín merki í Íþróttasalinn í Síðuskóla, ÞÓR og KA/ÞÓR. Næstu skref eru að setja upp rennur á veggi fyrir ofan mörkin til að auðveldara sé að skipta út og bæta við auglýsingaskiltum. Ef þú hefur áhuga á að kaupa skilti í Síðuskóla, þá er best að senda póst á netfangið handbolti@thorsport.is