Skráning á Pollamót lokar í dag

Það stefnir í svaðalegt Pollamótsfjör á Þórssvæðinu um helgina.

Tæplega 750 keppendur eru nú þegar skráðir til leiks en lokað verður fyrir skráningu á mótið í kvöld. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins, pollamot.is.

Það verður mikið um dýrðir á svæðinu alveg frá því á fimmtudag og þar til mótinu lýkur með stórdansleik í Boganum á laugardagskvöld. Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu mótsins.

Hlökkum til að sjá ykkur um helgina!