Skráning í Deildakeppni Píludeildar stendur yfir

Deildakeppnin hefst mánudaginn 16. janúar, en skráningarfrestur er til kl. 18 sunnudaginn 15. janúar. Meðlimir Píludeildar hafa þátttökurétt.
 
Keppt er í einmenningi og áætlað að spila einn leik í viku. Spilað verður í fjórum deildum sem verður skipt eftir meðaltali spilara og skrá þátttakendur sig í deildir eftir sínu meðaltali.
 
Nánari upplýsingar um keppnina má sjá á myndinni hér að neðan.