Smári með U16 til Finnlands

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í UEFA Development móti í Finnlandi dagana 1.-8. maí.

Ísland mætir þar Finnlandi, Lettlandi og Írlandi.

Í hópnum er Þórsarinn Smári Signar Viðarsson sem hefur þegar leikið 6 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni

Við óskum Smára til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.