Smári Signar skrifar undir sinn fyrsta samning

Smári Signar Viðarsson hefur undirritað leikmannasamning við knattspyrnudeild Þórs.

Samningurinn gildir út árið 2028 og er fyrsti samningur Smára sem er fæddur árið 2010 og er því enn gjaldgengur í 3.flokki.

Smári er 15 ára gamall fjölhæfur miðjumaður sem steig sín fyrstu skref með meistaraflokki í vetur og lék sinn fyrsta keppnisleik þegar hann kom inn af bekknum og lagði upp eitt mark í 0-5 sigri Þórs á Aftureldingu í Lengjubikarnum í febrúar. 

Hann á átta landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, fimm með U16 og þrjá með U17.

Við óskum Smára til hamingju með fyrsta samninginn og hlökkum til að fylgjast áfram með honum í Þórsbúningnum.

Smári Signar Viðarsson

Fyrsti samningurinn undirritaður