Spenna í Ljósleiðaradeildinni

Þórsarar eru enn við toppinn og jafnir tveimur öðrum liðum að stigum í Ljósleiðaradeildinni þar sem keppt er í Counter Strike-leiknum.

Toppliðin þrjú unnu öll sínar viðureignir í 16. umferðinni í liðinni viku og eru áfram jöfn, öll með 24 stig. Þórsarar raðast þó neðstir af þessum þremur liðum vegna færri unninna umferða en hin liðin. Þórsarar sigruðu lið Ármanns í 16. umferðinni. 

Í kvöld fara fram tveir leikir í deildinni, en Þórsarar eiga ekki leik í kvöld. Toppliðið, Atlantic, spilar í kvöld. Myndirnar eru af Facebook-síðu Rafíþróttasamtaka Íslands og Ljósleiðaradeildarinnar.