Stórum áfanga náð – ný íþróttamiðstöð á Þórssvæðinu

Frábærar fréttir bárust okkur Þórsurum í morgun þegar bæjarráð Akureyrar samþykkti samkomulag um uppbyggingu nýs íþróttahúss – íþróttamiðstöðvar á félagssvæði Þórs við Hamar.

Bæjarstjóra var falið að undirrita samninginn og þar með er endanlega staðfest að langþráður draumur félagsins verður að veruleika.

Með framkvæmdinni mun öll starfsemi Þórs sameinast á einum stað. Stefnt er að því að húsið verði tekið í notkun árið 2031.

Í dag eru iðkendur Þórs dreifðir um bæinn og stunda æfingar á fimm stöðum utan félagssvæðisins. Um 45% iðkenda á aldrinum 5–19 ára geta ekki sótt æfingar við Skarðshlíð og æfa því meðal annars í Íþróttahöllinni, íþróttahúsum Síðuskóla, Glerárskóla, Laugargötu og Oddeyrarskóla. Nýtt íþróttahús mun gjörbreyta þeirri stöðu og skapa betri aðstæður fyrir skipulagða íþróttastarfsemi barna og ungmenna.

Gólfflötur nýs íþróttasalar verður á bilinu 2.300–2.500 fermetrar og rúmar tvo fullgilda handboltavelli. Aðstaðan verður hönnuð með það fyrir augum að þar verði hægt að leika í efstu deildum í körfubolta og handbolta, auk þess sem áhorfendabekkir og öll nauðsynleg aðstaða fyrir mótahald yngri flokka verða til staðar. Þá verður gert ráð fyrir lyftingasal, samkomusal, skrifstofum og fundarrýmum og tengingu við stúkuna við Þórsvöll og félagsheimilið Hamar. Húsið mun ekki aðeins nýtast til æfinga og keppni heldur einnig fyrir fjölbreytta viðburði á borð við veislur og tónleika.

Frumkostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að heildarkostnaður verði á bilinu 3–4,5 milljarðar króna miðað við verðlag í janúar 2026. Samkvæmt framkvæmdaráætlun Akureyrarbæjar 2026–2029 er gert ráð fyrir eftirfarandi fjárveitingum:

• 2026: 40 milljónir kr.

• 2027: 50 milljónir kr.

• 2028: 600 milljónir kr.

• 2029: 900 milljónir kr.

Í minnisblaði Akureyrarbæjar kemur fram að áframhaldandi uppbygging á félagssvæði Þórs tryggi hagkvæmari nýtingu innviða og skapi mikilvægan vettvang fyrir fjölbreytta íþróttaiðkun til framtíðar.

Það er því ljóst að stórt skref hefur verið stigið – og framtíðin á Þórssvæðinu er björt. Áfram Þór!