Stuðningsmannakvöld Þórs/KA í kvöld

Á morgun er fyrsti heimaleikurinn hjá Þór/KA í Bestu deildinni og ekki seinna vænna að kynna leikmenn. Stuðningsmannakvöld verður haldið í Hamri í kvöld, mánudaginn 2. maí.

Stuðningsmannakvöldið hefur verið auglýst frá kl. 19:30-21:00, en dagskrá hefst þó ekki fyrr en um áttaleytið. Líklegt er að sum þeirra sem vilja mæta á stuðningsmannakvöldið verði einnig á leik hjá karlaliði KA á Dalvíkurvelli kl. 18 og því hefjum við dagskrána ekki strax kl. 19:30 - opnum bara húsið.

Á dagskránni í kvöld er ávarp þjálfara, leikmannakynning, sala árskorta, sala á Þór/KA-varningi og mögulega afhending árskorta, en við erum að bíða eftir kortunum úr prentun. Að sjálfsögðu sýnum við ykkur einnig nýju stjórnina eins og hún er skipuð eftir breytingar á síðasta aðalfundi.

Vonumst til að sjá sem flest ykkar.