Styrktu Þór um leið og þú styður stelpurnar okkar

Stórleikur fer fram á Laugardalsvelli á morgun þegar íslenska landsliðið mætir því enska í undankeppni HM.

Í íslenska hópnum eru tveir uppaldir Þórsarar; þær María Catharina Ólafsdóttir Gros og Sandra María Jessen.

Stelpurnar þurfa á góðum stuðningi að halda enda enska landsliðið eitt það besta í heimi um þessar mundir

Við kaup á miða á leik Íslands gegn Englandi er hægt að velja “sitt félag”. Með því að velja Þór, fær félagið 20% af miðaverðinu beint til sín.

Liðin mætast á Laugardalsvelli á laugardag kl. 16:30 og er hægt að nálgast miðasölu leiksins á miðasöluvef KSÍ.


Miðasala