Styrkveitingar úr Minningarsjóði Guðmundar Sigurbjörnssonar

  • Besta deild kvenna, miðvikudagur 13. september kl. 16:45: Þór/KA - Breiðablik
  • Lengjudeild karla, laugardagur 16. september kl. 14:00: Þór - Grindavík

Gestum á leikjum Þórs/KA gegn Breiðabliki í Bestu deildinni miðvikudaginn 13. september og Þórs gegn Grindavík laugardaginn 16. september í Lengjudeildinni gefst kostur á að setja nafn sitt í pott sem dregið verður úr í leikhléi á Þórsleiknum á laugardaginn um veglega vinninga.

Vinningar sem dregnir verða út:

  • 1 x 50.000kr gjafabréf frá Icelandair (Icelandair)
  • 3 x Samsung Galaxy Tab A7 Lite spjaldtölvur (Vodafone)
  • 3 x Galaxy Buds Pro heyrnartól (Vodafone)
  • 2 x Helgarleiga á bílaleigubíl (Höldur)
  • 4 x Þvottur og bón (Höldur)

Tilefnið er að í leikhléi í báðum þessum leikjum fá Þór/KA og Þór afhentan peningastyrk úr Minningarsjóði Guðmundar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi formanns Þórs. Það verða synir Guðmundar, þeir Bjarni Freyr og Einar Már sem afhenda munu formönnum þessa styrki.

Minningarsjóðurinn stendur einnig fyrir léttum lukkuleik þar sem áhorfendur á þessum tveimur leikjum geta sett nafn sitt í pott í von um að vera dregnir út í leikhléi á Þórsleiknum á laugardaginn.