Tap hjá Þór/KA í Bestu deildinni

Þór/KA náði ekki að fylgja eftir kröftugri byrjun í leik sínum gegn FH á Þórsvellinum í gær, mörkin létu standa á sér og gestirnir gengu á lagið.

Þór/KA hóf leikinn af mun meiri krafti en gestirnir, en eftir fyrstu 15-20 mínúturnar þar sem liðið sótti stíft, en náði ekki að skora, náðu gestirnir að komast betur inn í leikinn. Á 31. mínútu skoraði Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir eftir að skot frá McKenzie George hafði farið í stöngina og þaðan til Hildigunanr. Markið var nokkuð gegn gangi leiksins, en það breytir engu um markið sjálft. Sara Montoro tryggði síðan sigur gestanna með marki úr skyndisókn á 90. mínútu, marki sem er henner fyrsta í efstu deild.

Leikskýrslan á vef KSÍ.
Mótið á vef KSÍ.

Þór/KA situr núna í fimmta sæti deildarinnar með níu stig, en deildin er jafnari en oft áður undanfarin ár. Til dæmis er Valur á toppnum með aðeins fjórum stigum meira en Þór/kA. Næsti leikur liðsins er einmitt útileikur gegn Val á Hlíðarenda þriðjudaginn 6. júní kl. 19:15.