Tap í framlengingu, en hársbreidd frá sigri

Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfri Þórs, leggur mönnum línurnr í einu leikhléinu.
Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfri Þórs, leggur mönnum línurnr í einu leikhléinu.

Tap í framlengdum leik gegn Fjölni varð niðurstaða gærdagsins í leik okkar manna í 1. deild karla í körfubolta. Smári Jónsson kom Þór tveimur stigum yfir þegar 30 sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma, Fjölnismenn jöfnuðu og fengu tækifæri til að komast yfir, en tvö vítaskot þeirra geiguðu. Þórsarar fóru í sókn og komu sér í gott skotfæri undir körfunni, en hittu ekki. Fjölnir hafði svo vetur í framlengingunni.

Þetta var þriðji leikur Þórsara á tímbilinu og þriðja tapið, en með með smá heppni hefði liðið getað verið komið með tvo útisigra. Þórsarar hafa hins vegar sýnt með frammistöðu sinni í leikjunum þremur að þeir geta betur en stigataflan sýnir, en hefur vantað örlítið upp á til að klára verkefnin og misst af sigrum fyrir klaufaskap og óheppni í bland.

Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Þórsarar höfðu forystu eftir fyrsta leikhluta, en Fjölnir náði þriggja stiga forskoti í lok fyrri hálfleiksins. Fjölnir náði mest tíu stiga forskoti, en Þórsarar unnu það upp og hnífjafnt í lok þriðja og fjórða leikhluta og því þurfti framlengingu.

Þórsarar lentu í villuvandræðum og meiðslum sem klárlega höfðu áhrif á lokamínútunum. Reynir Róbertsson kominn með fjórar villur í fyrri hálfleik og spilaði því mun minna í seinni hálfleiknum en hann hefði ella gert. Harrison Butler meiddist í lok fjórða leikhluta og kom ekkert við sögu í framlengingunni. Reynir fékk sína fimmtu villu skömmu síðar og Smári fékk sína fimmtu villu snemma í framlengingunni.

Fjölnir - Þór (19-25) (32-23) 51-48 (15-18) (20-20) 86-86 (13-7) 99-93

Hjá Þór var Jason Gigliotti atkvæðamestur með 21 stig og 18 fráköst, Harrison Butler með 21 stig, Smári 19 og Reynir 17.

Fjölnir
Lewis Diankulu 22/16, Viktor Steffensen 18/10/1, Kristófer Gíslason 18/5/5, Kennedy Clement 13/4/4, William Thompson ⅗, Ísak Baldursson 3/2/9.

Þór
Jason Gigliotti 21/18/1, Harrison Butler 21/8/2, Smári Jónsson 19/4/4, Reynir Róbertsson 17/4, Baldur Örn Jóhannesson 11/9/3, Hákon Hilmir Arnarsson 3/1/3, Fannar Ingi Kristínarson 1/0/1, Róbert Orri Heiðmarsosn þrjú fráköst.

Ítrleg tölfræði leiksins - kki.is.

Næsti leikur Þórs er strax á sunnudag þegar Þórsarar taka á móti liði Hauka.

  • Mót: VÍS bikarinn
  • Leikur: Þór - Haukar
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Sunnudagur 22. Október
  • Tími: 18:00