Þér er boðið í jólarjómavöfflur og rjúkandi súkkulaði

Þórsarar nær og fjær!

Eins og undanfarin ár í aðdraganda jóla bjóða formenn Þórs fyrr og nú öllum Þórsurum í jóla - rjómavöfflur og rjúkandi súkkulaði með.

Á morgun, föstudaginn 8. desember frá kl 9.00 til kl. 11.30 standa formennirnir Nói Björnsson og Sigfús Ólafur Helgason við vöfflujárnið og bjóða gestum.

Njótum aðventunnar í góðu félagskap.

Allir hjartanlega velkomnir í Hamar.

Áfram Þór.