Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Ýmsar árlegar viðurkenningar eru jafnan afhentar í aðdraganda ársþings KSÍ, Knattspyrnusambands Íslands.
Grasrótarverðlaunum KSÍ er skipt upp í þrjá flokka: Grasrótarverkefni ársins, Grasrótarfélag ársins og Grasrótarpersóna ársins.
Þór er grasrótarfélag KSÍ árið 2025
Þór hlýtur nafnbótina grasrótarfélag KSÍ árið 2025 vegna Pollamótsins.
Pollamótið var fyrst haldið árið 1988. Síðustu ár hafa um 650-750 keppendur mætt á mótið, árið 2023 mættu 850. Af um 650 keppendum í fyrra voru 250 þátttakendur konur og mikil aukning hefur verið í þátttöku kvenna síðustu ár.
Deildirnar sem keppt er í á Pollamótinu:
Polladeildin: Karlar 28+
Jarladeildin: Karlar 38+
Lávarðadeildin: Karlar 48+
Öðlingadeildin: Karlar 56+
Skvísudeildin: Konur 20+
Dömudeildin: Konur 28+
Ljónynjudeildin: 35+
Verðlaunin verða veitt á ársþingi KSÍ sem fer fram á Egilsstöðum þann 28. febrúar. Sjá frétt á vef KSÍ