Þór fær Njarðvík heimsókn í dag

Þór fær lið Njarðvíkur í heimsókn á VÍS-völlinn í 19. umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu í dag. Leikurinn hefst kl. 17. Upphitun í Hamri frá kl. 15:30.

Fyrri leik liðanna sem fram fór í Njarðvík 24. júní lauk með 2-2 jafntefli. Leikurinn verður í beinni á YouTube-rás Lengjudeildarinnar. Vakin er athygli á breyttum leiktíma.

Þór og Njarðvík hafa mæst 15 sinnum í næstefstu deild Íslandsmótsins. Þór er með níu sigra á móti þremur.

Fyrir leikinn í dag er Þór í 6. sæti deildarinnar með 24 stig úr 18 leikjum, tveimur stigum frá 5. sætinu þar sem Leiknir situr.