Þór mætir Ægi í Þorlákshöfn í kvöld

Þór og Ægir mætast í 16. umferð Lengjudeildarinnar á Þorlákshafnarvelli í kvöld kl. 18. 

Fyrir leikinn sitj Ægismenn á botni deildarinnar með átta stig, en Þórsarar eru í 8. sæti með 17 stig og hafa fjarlægst baráttun um umspilssætin fjögur aðeins, eru nú sex stigum frá fimmta sætinu. Þór er hins vegar ðeins þremur stigum ofan við fallsæti, en þar situr Njarðvík í næstneðsta sætinu með 14 stig. Enn er þó 21 stig eftir í pottinum, sjö leikir.

Leiknum verður streymt á YouTube-rás Lengjudeildarinnar:

Ægir á ekki langa sögu í næstefstu deild og því er þetta aðeins önnur viðureign þessara liða í deildinni. Sú fyrri var 2. júní þegar Þórsarar höfðu 3-1 sigur á Þórsvellinum.