Þór mætir Fjölni í Boganum í dag

Þórsarar spila sinn þriðja leik í Lengjubikarnum þetta árið þegar þeir fá Fjölni í heimsókn í Bogann í dag kl. 15.

Gengi Þórsara í fyrstu tveimur leikjunum var misjafnt, fyrst kom 4-1 sigur gegn Keflavík í Boganum og svo 0-5 tap gegn Fylki í Árbænum um liðna helgi. Leikur Þórs og Fjölnis hefst kl. 15 og kostar 1.000 krónur inn.

Leikurinn verður ekki á Þór TV.

Mótið á vef KSÍ.

Leikskýrslan birtist á vef KSÍ klukkutíma fyrir leik.