Þór mætir Selfyssingum á útivelli í dag

Fjórir leikir verða í 18. umferð Lengjudeildar karla í dag, þar á meðal er heimsókn Þórsara á Selfoss.

Fyrir leikinn er Þór í 6. sæti deildarinnar með 23 stig, en Selfoss í 10. sæti með 19 stig. Fyrri viðureign liðanna í deildilnni í sumar lauk með 2-1 sigri Þórs. Selfyssingar unnu hins vegar báðar viðureignir þessara liða í deildinni í fyrrasumar. 

Leikur Selfoss og Þórs hefst kl. 18 og verður sýndur beint á YouTube-rás Lengjudeildarinnar.