Þór semur við Króatískan framherja.

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við Króatískan framherja,Toni Cutuk að nafni og mun hann leika með Þór í fyrstu deildinni á komandi tímabili. Tony er 208 cm hár og 107 kg, fæddur árið 1999.

Í fyrra spilaði hann með KK Sonik Puntamika sem er lið í Premijer Liga í Króatíu. En áður hafði hann meðal annars spilað u18 landsliði Króatiu.

Á síðasta tímabili skilaði hann 6 stigum og 3.5 fráköstum að meðaltali í leik á 19.5 mínútum en hafa ber í huga að stigaskor í leikjum í Króatíu er allajafna talsvert lægra en þekkist á Íslandi.

Myndband með kappanum má sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=kbYsnYcLwIQ&t=318s&ab_channel=MarkoZadro