Þóra Pétursdóttur nýr formaður Þórs

Ingi Björnsson (t.v.), Þóra Pétursdóttir nýr formaður og Árni Óðinsson fyrrum formaður Þórs.
Ingi Björnsson (t.v.), Þóra Pétursdóttir nýr formaður og Árni Óðinsson fyrrum formaður Þórs.

Á aðalfundi Þórs í gærkvöld bar það helst til tíðinda að Þóra Pétursdóttir tekur við embætti formanns félagsins af Inga Björnssyni. Þóra, sem fædd er árið 1982 og hefur verið afar virk í félagsstarfi Þórs frá barnæsku er þar með önnur konan til að gegna embætti formanns. En sú fyrsta var Svala Stefánsdóttir sem var formaður rétt fyrir síðustu aldamót.

Ingi Björnsson gaf ekki kost á sér áfram í embætti formanns, en hann hafði gegnt því embætti undanfarin fjögur ár. Óhætt er að segja að í tíð Inga hafi félagsstarf blómstrað og rekstur þess sjaldan, ef nokkurntíman verið betri (nánar um það síðar). Íþróttafélagið Þór vill koma á framfæri miklum þökkum til Inga fyrir afar gott starf í þágu félagsins.

Nánar verður fjallað um aðalfundin í síðar í dag.