Þór/KA hefur leik í Bestu deildinni í kvöld

Þór/KA mætir Stjörnuinni í Garðabænum í kvöld kl. 18 í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Keppni í Bestu deildinni hófst í gær með þremur leikjum, en tveir leikir fara fram í kvöld. Þór/KA fer í Garðabæinn og tekst á við lið Stjörnunnar í annað skiptið í þessum mánuði, en þessi lið mættust í úrslitaleik Lengjubikarsins í byrjun mánaðarins.

Þessi lið hafa mæst 36 sinnum í efstu deild, fyrst árið 2000 og svo aftur 2006 og á hverju ári síðan þá. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan (skjáskot af ksi.is) hefur Stjarnan oftar haft betur.