Þór/KA mætir Breiðabliki í dag

Önnur umferð í efri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu er hafin og á Þór/KA heimaleik gegn Breiðabliki í dag. Leikurinn hefst kl. 16:45.

Fyrir leik í dag gefst gestum kostur á að setja nafnið sitt í pott og verður dregið um veglega vinninga í leikhléinu. Tilefnið er að í leikhléi verður afhentur styrkur til knattspyrnudeildar úr minningarsjóði Guðmundar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi formanns Þórs. Það eru synir Guðmundar, þeir Bjarni Freyr og Einar Már sem afhenda munu styrkinn.

Fyrir leikinn í dag er Þór/KA í 6. sæti deildarinnar, neðsta sæti efri hlutans, með 26 stig, tveimur stigum á eftir FH sem er í 5. sæti deildarinnar.