Þór/KA með sigur á KR

Jóhann Kristinn Gunnarsson með stutta ræðu í leikslok. Leikurinn fer ekki í sögubækurnar, en verður …
Jóhann Kristinn Gunnarsson með stutta ræðu í leikslok. Leikurinn fer ekki í sögubækurnar, en verður þess í stað notaður sem lærdómur.

Þór/KA skoraði þrjú mörk gegn einu marki KR í leik liðanna í Lengjubikarnum í dag.

Leikurinn í heild var ekki mikið fyrir augað. KR komst yfir eftir hornspyrnu þegar boltinn fór af leikmanni okkar og í markið. Í aðdragandanum hafði Hulda Björg verið að hlaupa á eftir boltanum með leikmann KR á hælunum upp undir vítateig, en tognaði og KR-ingar komust þá tvær á móti einum varnarmanni og Hörpu í markinu. Ekki tókst þeim þó að skora úr því færi heldur fengu horn og upp úr því kom markið.

Tæpum tíu mínútum síðar jafnaði Sandra María í 1-1 þegar hún komst framhjá varnarmönnum vinstra megin í teignum og skoraði. Jafnt var eftir fyrri hálfleikinn.

Amalía Árnadóttir náði forystunni fyrir Þór/KA þegar hún fékk boltann út í teiginn frá endalínunni og átti ekki í erfiðleikum með að finna leið í netið. Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði svo þriðja markið eftir að fyrirgjöf sem Sandra María skallaði síðan frá endalínunni fyrir markið og Hulda Ósk kláraði færið.

Lokatölur 3-1 í leik sem fer ekki í sögubækurnar fyrir gæði.

Leikskýrslan á vef KSÍ.
Mótið á vef KSÍ.

Þór/KA hefur nú unnið tvo leiki í sínum riðli í Lengjubikarnum, en næsti leikur verður í Boganum laugardaginn 4. mars kl. 17 þegar Íslandsmeistarar Vals koma norður.